Elskum við eða hötum við'ana, blessaða, helvítis krónuna!

Fyrst skilgreining frá Seðlabanka Íslands:

Stýrivextir

Stýrivextir eru þeir vextir, sem yfirvöld nota til að reyna að hafa áhrif á markaðsvexti. Víðast eru þetta vextir á einhvers konar seðlabankaútlánum eða -innlánum. Tilgangur með hækkun slíkra vaxta getur verið að draga úr ofþenslu og verðbólgu eða hækka gengi gjaldmiðils. Hér á landi eru stýrivextir þeir vextir, sem Seðlabanki Íslands ákveður á fyrirgreiðslu við lánastofnanir í formi svokallaðra lána gegn veði (áður endurhverf verðbréfaviðskipti), en í þeim viðskiptum geta lánastofnanir fengið fé að láni frá Seðlabankanum í 7 daga gegn veði í skuldabréfum.

Og svo eitthvað frá mér:

Stýrivextir á Íslandi í dag

Ljóst er að stýrivextir á Íslandi í dag eru 18%. Hækkun stýrivaxta hjá Seðlabanka Íslands í dag var upp á 6%.

Stýrivextir í Bandaríkjunum í dag eru 1,5%, eða 1/4 af hækkun stýrivaxta hjá Seðlabanka Íslands í dag.

Þetta jafngildir einnig því, að stýrivextir séu 12 sinnum hærri á Íslandi í dag en í Bandaríkjunum. Á sama hátt má segja, að stýrivextir á Íslandi í dag séu 4,8 sinnum hærri en innan ESB og um 3,5 sinnum hærri en í Noregi.

Munið, að yfirdráttarvextir í neðangreindum löndum og yfirdráttarvextir á krítarkortun o.s.frv. eru aðeins hærri en sjá má hér að neðan, en ekki afar mikið. Verðbólgustigið í löndunum segir heilmikið til um stýrivextina, því stýrivextirnir eru sjaldan eða aldrei lægri en verðbólgan, en þó eru auðvitað undantekningar frá þeirri reglu eins og öllum reglum.

Stýrivextir í nokkrum löndum

  • Ísland - 18,00%
  • ESB - 3,75%
  • Bandaríkin - 1,50%
  • Kanada - 2,25%
  • Noregur - 5,25%
  • Danmörk - 5,50%
  • Svíþjóð - 4,25%
  • Slóvakía - 3,75%
  • Ísrael - 3,50%
  • Kórea - 4,25%
  • Nýja Sjálands - 6,5%
  • Ungverjaland - 11,5%
  • Víetnam -13,00%
  • Indland - 8,00%
  • Sameinuðu arabísku furstadæmin - 1,50%
  • Kúvæt - 4,50%
  • Kína - 3,87%
  • Ástralía - 6,00%

mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: H G

Stýrivextirnir hanga ekki einu sinni í verðbólguhraðanum sem er tæp 26% nú. Bankarnir geta borgað þá meðan þeir fá að rukka skuldunauta sína um yfir 15% raunvexti sem gerir samtals 41% vexti! Reynið að heimta lækkun raunvaxta, drengir!

H G, 28.10.2008 kl. 21:47

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég held að ákvörðun um ESB aðild og þar með upptöku evru myndi róa fólk niður. Það myndi kannski sjá að eftir 1-2 ára harðindatímabil væri björt tíð og blóm í haga framundan!

Að bjóða fólki eins og mér, sem er 46 ára gamalt upp á sama dansinn og frá 1978 til 1991 er að mínu mati ekki valkostur, við tökum því ekki enn eina ferðina - við erum orðin þreytt á þessu!

Við viljum venjulegt, rólegt, evrópskst, hversdagslegt líf - ekkert meira og ekkert minna!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 28.10.2008 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband