Tímarnir breytast og kerfið með, en samt er nauðsynlegt að standa rétt að breytingum ...

Tímarnir breyta og kerfið með ...Ekki ætla ég að gagnrýna ákvörðun Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra að landið verði gert að einu lögregluumdæmi, því slíkar hagræðingaraðgerðir - ásamt svipuðum aðgerðum varðandi varðandi skattstjóra og sýslumenn - hef ég bent á í mjög langan tíma.

Það er vissulega skiljanlegt, í ljósi erfiðrar stöðu ríkisfjármála, að farið skuli í stórkostlegan niðurskurð á framlögum til löggæslumála - líkt og skorið er niður í öllum málaflokkum hjá ríkisvaldinu -, sem birtist m.a. í formi breytinga á vaktakerfi og niðurskurði á yfirvinnu og fastri yfirvinnu o.s.frv. Svipaður niðurskurður bitnar því miður niður á starfsmönnum og starfsemi allra ríkisstofnana, m.a. þeirri sem ég vinn hjá, tollstjóra.

Tíminn er ekki að vinna með okkur ...En hvernig í ósköpunum dettur hinu háa ráðuneyti í hug að fara í slíkar "strúktúrbreytingar" án þess að tryggja fyrir því einhvern stuðning lögreglumanna og yfirmanna löggæslu um land allt? Kannski er tími til kominn, að einhverjir sérfræðingar í breytingarstjórnun komi að slíkri endurskipulagningu hjá hinu háæruverðuga dómsmálaráðuneyti?

Ljóst er að hið háa ráðuneyti fellur ítrekað á námskeiðinu "breytingastjórnun 101". 


mbl.is Ísland verði eitt lögregluumdæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband