3.5.2008 | 11:50
Eðlilegt eftir langt þensluskeið
Ég veit ekki betur en að kólnun hafi verið spáð um nokkurn tíma og allir máttu svo sem vita að þetta svokallaða góðæri gat ekki gengið áfram endalaust. Framkvæmdunum fyrir austan er nú lokið og einnig stækkun Norðuráls og síðan var einnig ljóst að einhvern tíma myndi hægja á útrásinni.
Þótt ég hafi kannski oft verið bjartsýnni á undanförnum árum, sé ég þó ekki það svartnætti, sem margir virðast sjá. Í raun held ég að það sé frekar bjart framundan og minni í því sambandi á framkvæmdir í Helguvík og hugmyndir um uppbyggingu iðnaðar í Þorlákshöfn og á Húsavík. Þá er ekki útilokað að atvinnumál á Vestfjörðum leysist ef þar verður af byggingu olíuhreinsunarstöðvar. Það er líklegt að einhver fyrirtæki lendi í tímabundnum erfiðleikum og jafnvel að einhver verði gjaldþrota, en að hér sé allt á heljarþröm er mjög fjarri sannleikanum.
Með kveðju, Guðbjörn Guðbjörnsson
Kaupmáttur rýrnar í tvö ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.