19.3.2009 | 07:52
Framsóknarflokkurinn ný hækja VG?
Lengi getur vont versnað. Samfylkingin hefur með yfirlýsingum sínum gefið Framsóknarflokknum til kynna að ekki sé áhugi á samstarfi við Framsókn í framtíðinni, enda flokkurinn líklega hættulegasta samkeppnin á miðjunni. Þetta eru nú þakkirnar frá Samfylkingunni fyrir að gera fyrstu vinstri stjórnina í 18 ár mögulega. Eftir samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og erfiðan skilnað hefði Framsókn átt að vera ljóst hverslags tækifærissinnar eru í Samfylkingunni og hversu margklofinn hann í raun er. Þar hittir skrattinn (Framsókn) vissulega ömmu sína í Samfylkingunni! Nú er Framsókn farin að hjálpa VG í von um að verða nýja hækjan þeirra.
Spurningin er hvort Sjálfstæðisflokkurinn færir sig meira inn á miðjuna og gerist hættulegur keppinautur Samfylkingar og Framsóknarflokks, því ljóst er að stjórnmálin öll hafa færst meira inn á miðjuna eða í raun til vinstri. Miðað við úrslitin í Reykjavík og í Norðausturkjördæmi eru líkur á miklum breytingum á stefnu Sjálfstæðisflokksins hverfandi og líklegra að flokkurinn haldi sig meira til hægri líkt og undanfarin ár.
Í lýðræðislegum flokki, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn vissulega er, er það þó grasrótin sem ræður stefnu flokksins og tekur um hana ákvarðanir á fjölmennum Landsfundi. Allir hljóta að bíða spennir eftir niðurstöðu þess fundar.
Samfylkingin „loftbóluflokkur“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:57 | Facebook
Athugasemdir
Guðbjörn. Þetta eru kaldar kveðjur sem samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins til margra ára og margra góðra verka.
Mannstu að það var Sjálfstæðisflokkurinn sem henti "hækjunni", sem flokkurinn studdist við í öll þessi ár.
Þú getur varla ætlast til, að Framsóknarflokkurinn bíði eftir því að sjálfstæðismönnum hugnist það, að grípa aftur til "hækjunnar" þegar þeim hentar.
Stjórnmál ganga út á það að reyna að koma einhverju í framkvæmd, ekki ýta skaflinum á undan sér eins og Geir Haarde gerði. Hann var í slíkri afneitun á ástandinu og haldinn svo ofboðslegum verkkvíða að ekkert gerðist í marga mánuði. Lestu bara gamlan Mogga þá áttar þú þig á hvað var að gerast og að Geir gerði ekkert á sama tíma.
Það á aldrei við, allra síst núna í þessu ástandi.
Benedikt V. Warén, 19.3.2009 kl. 08:38
Benedikt:
Ég var einn sá fyrsti í Sjálfstæðisflokknum sem gagnrýndi aðgerða- og ákvarðanaleysi formannsins. Það er manni ekki til framdráttar að gagnrýna forystuna í flokknum, stefnu hans eða annað sem tengist flokknum. Það segir mér hins vegar enginn hvað ég á að skrifa eða segja! Ég segi líkt og afi minn: Ég er frjáls maður í frjálsu landi!
Það var yfirlýsing Bjarna Harðarsonar sem gerði útslagið að sjálfstæðismenn sáu að ekki var treystandi á samstarf við Framsóknarflokkinn með eins manns meirihluta. Sú spá var rétt en líkt og við sjáum var ekkí á hann treystandi fyrir Framsóknarflokkinn, hvað þá í meirihlutasamstarfi þessara flokka.
Það er Framsóknarflokkurinn sem þrálátlega frábiður sér allt samstarf við Sjálfstæðisflokkinn að kosningum loknum - því miður segi ég!!!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 19.3.2009 kl. 09:13
Vonandi þurrkast framsóknarflokkurinn út í komandi kosningum. Þetta formannsviðrini þeirra er skilgetið afkvæmi spillingarinnar og er í stíl við hina rotnu innviði flokksins sem hafa ekki verið endurnýjaðir til betri verka. Rotþró er eins og dauðhreinsað þvottahús við hliðina á framsóknarflokknum.
corvus corax, 20.3.2009 kl. 01:27
Nú ferðu yfir strikið corvus corax..... Svona skrifar maður ekki !
Stefanía, 20.3.2009 kl. 20:44
Algjörlega ósammála corvus corax, því ég tel að eina vonin fyrir þessa þjóð felist í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að kosningum loknum.
Framsóknarflokkurinn hefur ekki áttað sig á því að VG og Samfylking hefur engan áhuga á samstarfi við þá.
Guðbjörn Guðbjörnsson, 22.3.2009 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.